Kolbeinn Einarsson

Monday, January 27, 2003

Kynjamisrétti!
Ég skammast mín ekkert mikið fyrir að segja ykkur að þegar ég var lítill þá hafði ég gaman að því að klæðast kjólum, já kjólum.
Það merkir ekkert að ég sé einhver skápa-hommi, ég hafði líka gaman að því að láta loka mig inní ferðatöskum og það gerir mig ekki að neinum skápa-laumufarþega.
Þetta var bara vegna þess að ég var ungur uppreisnaseggur sem vildi jafnrétti kynjanna, því það er ósanngirni að stelpur fengu að ganga í kjólum, pilsum og kjólum en strákar bara í bara í buxum og aðeins ein þjóð í pilsum. Samt fá karlmenn að ganga í pilsum í dag þökk sé Arnari Gauta og Einari Erni en ekki enn í kjólum án þess að vera við karlmann kenndur.
Ég heimtaði meira segja að fá að fara einu sinni í kjól í jólaboð en af einhverri ástæðu þá fékk ég ekki samþykki mömmu minnar.
En seinna þá þá komst ég að því að ég gæti bara farið sem kvennmaður á grímuböll og gerði það fyrst í einhveri úti sumargrímugöngu þar sem allir kölluðu mig Kolbeiníu og hlóu en ég vildi samt vera frekar vera kölluð Kolbrún. Teknar voru myndir af þessu en vinir míni voru svo snjallir að skemma eina eintakið mitt en ég heyrði samt að það væri til annað heima hjá Þórunni okkar Markann.
Svo fór ég sem kona aftur í 6. bekk, svo sem indjánkonan Pocahontas í 7. bekk svo í dragshowi í 10. bekk og svo minnir mig að ég hafi fengið að leika konu í leikriti í leikskóla.
Ég meina hver samdi þessar reglur pælið í því ef gaurinn sem fann upp fyrstu skóna hefði sagt "þetta er bara fyrir karla" pælið í því þá væru allar konur labbandi um á táslunum en við karlmennirni erum bara ekki svo grimmir, svo stelpur deilið kjólunum. Flott mál.

Ástæðan afhverju ég kalla þetta upp núna er því að Eddarína systir mín var með eitthvað svona fegrunarsléttimíkingarskorpudót í andlitinu og ég vildi líka fá svoleiðis til að verða sætur og ég fékk það og nú er ég með þetta framan í mér og er á góðri leið að verða sætur.


Lifi byltingin brennum brýrnar!