Kolbeinn Einarsson

Saturday, December 21, 2002

Gleðilegan laugardag

sjáið hvað síðan er orðin falleg ég gerði þetta allt sjálfur.

Friday, December 20, 2002

Kolbeinn var ber þegar hann var að skoða bækur. Þá kom Begga mamma hans og sagði honum að fara í buxur.
Þetta var æfing fyrir stafinn Bb.

Edda á dós og dósaopnar og Edda opnar dósina með dósaopnaranum og hún á disk.
Þetta var stafurinn Dd.

Valgerður var í baði, því hún var einsog sóði.
og þetta var alíslenski stafurinn Ðð, sjáið hvað hann er líkur stafnum D en hann er ekki D hann er Ð.

Allir þessir stafir hafa það sameiginlegt að vera samhljóðar sem þýðir að þeir geti ekki sagt nafnið sitt sjálfir.

Hey beta "allt annað en" rokk kom til ísafjarðar og ætlaði hitta fiffann einsog hún kallaði hann.
Er það ekki einsog að fara í köfun og ætla sér að sparka í tundurdufl!

Ný byrjun
Nú er ég loksins byrjaður aftur eftir að síðan mín lá niðri í góðan tíma eftir að Gulli skemmdi, en ég breytti henni bara í gær ég var búinn að gera alla linkana mína, skrifa góð grein og allt og átti bara eftir að publisha það allt en þá fraus tölvan mín góða.
En núna byrja ég aftur og verð mjög duglegur.

Ég er búinn að vera að gera fullt þessar vikurnar einsog að mála símann minn í öllum litum regnbogans + hvítumóg svörtum.
Ég er búinn að gera jólaskó handa öllum á heimilinu mömmu, mér, Villu, Hjalta, Eddu og meiri segja Tátu litlu.
Ég komst að því að vinstri rasskinnin mín væri sterkari en sú hægri samt er ég geri ég allt með hægri helmingnum mínum skrítið ekki satt.
Ég er samt ekkert búinn að ríða, ekkert búinn að fara í limbó og Tom Cruise er ekki búinn að senda mér neinn dónaleg sms (hann er ábyggilega búinn með innistæðunna sína).

En það er eitt sem ég ég komst að og þetta er ekkert grín málið er að Bandaríska-leyniþjónustan (CIA) er á eftir mér. Er ekki bara best að ég segi ykkur bara alla sólarsöguna.

Einsog þið vitið þá er ég athafnamaður framtíðarinnar og á líklega eftir að stjórna jörðinni og næstum allir eru sáttir við það nema BNA, þeir eru eitthvað ósáttir við nafnið sem þeir munu fá. Málið er að ég ætla mér að skíra jörðina Sumarbústaður og öll land munu heita eftir einhverju sem tengist sumarbústöðum og BNA fengu nafnið Rotþró og ákváðu þá að fella mig en þeir verða að gera það með mikilli leynd.
Því allir yrðu auðvitað brjálaðir ef þeir mundu drepa komandi heimsleiðtoga, þið munið nú hvað allir voru reiðir þegar Hitler dó svo þeir sendu besta njósnara sinni hana Elínu Dagmar Lárusdóttur og hún hefur aðsetur í íbúðinni fyrir ofan mig og njósnar um mig alla daga og alla nætur hún er meiri segja með myndavél sem er dulbúinn sem köttur en hún gabbar mig ekki.
Fyrsta sem hún gerði var að skjóta í mig fíladeyfilyfjum og ráðast síðan á mig með sjóðheitum kokteilteljara og brenna á mér bringuna svo illa að ég þyrfti að fara í aðgerða.
En málið er að hún vinnur á sjúkrahúsinu og hún var viðstödd aðgerðina í þeim tilgangi að koma staðsetningartæki fyrir í bringunni á mér en þorsteinn læknir vissi hvað ég væri mikilvægur maður og lét lögreglumann vakta mig, flott mál.
En Elín sá við því og sagði löggunni að fara út, þá sagði löggan "en hann þors..", þá sagði hún aftur bara ákveðnari "farðu út" og hann fór út eins og sönn ísfirsk lögga mundi gera. Og hún kláraði verkið og setti staðsetningartæki í bringuna á mér og setti svo tálbeitu á bakið á mér, svona plat staðsetningar tæki, það var hvítt og stóð á því "SWAROMED silber-silberchlorid elektrode".
En hún gabbaði mig ekki en ég mun samt hafa það í bringunni á mér aðeins lengur hver veit nema að það komi sér að góðum notum einn daginn.
Einsog lærifaðir minn og eiginkona Yoda hún Lena segir alltaf "maður er ekki alvöru karlmaður nema maður hafi staðsetningartæki í bringunni.