Kolbeinn Einarsson

Saturday, November 30, 2002

Gærkvöldið var gífurlegt og ég framleiddi þar margar góðar sögur einsog þegar 1.des maturinn var búinn og Kalli lét mig bíða í fimm mínutur útí fjöru sem dróust upp í klukkutíma en ég ákvað að nota bara friðinn og rónna til að kafa djúpt inní sjálfan mig.
Ég fann mér stól og fékk mér sæti og fór að hugsa um allar þjáningar heimsins en þegar ég var aleg að fara að komast að tilgangi lífsins þá brotnaði stóllinn og ég lenti á rassinum á harðri bryggjunni, bólgnaði á rassinum og stóllinn var látinn að sofa hjá fiskunum.
En ég gafst ekki upp og ég tók mér annan stól og byrjaði upp á nýtt en vegna látanna þarna áður þá missti staðurinn karmað sitt og ég leita á rólegri mið. Ég tel þá að fjarann sjálf sé staðurinn en það er engin dans á rósum þessir varnagarðar, allaveg þá FLÝG ég ég á hausinn í fyrsta skrefi og á næstefsta steini og ég upplifi svona, líf mitt þjóta fyrir augunum augnablik en því ég er svo ungur að það er ekki búið að gera neitt svoleiðis myndband fyrir mig svo ég fékk bara að sjá það sama og þegar ég dó í fyrralífi, flott líf bara ánægður með að sjá það aftur.
Og svo lendi ég með andlitið flatt á steinunum í fjörunni og dempaði aðeins höggið með vinsti hendinni minni en hafið ekki áhyggjur ég er vel heill, steinarnir voru svo vel slípaðir og ég svo hraustur að það sést ekki á mér. Ef þú lemur konuna þína þá mæli ég með því að henda henni niður í fjöru.
Loksins er ég kominn niður og sestur þá nenni ég ekkert að spá í djúpt dót því "ég er töffari sem er kúl og ég geng í unglingafötum, hlusta á rok & hop-hop tónlist og drekk RC cola"(Sölvi þú gætir ekki lýst þessu betur). Svo ég hugsa bara um klám og spila rússneska rúllettu við Piotr, Dimitrji og Vasjili í símanum mínum þangað til Kalli og einhverjar strandgellur sóttu mig á blæulausum strandbíl blastandi beach boys.
Og ég yfirgaf hafið og leitaði uppi fleiri vandræði.


p.s. Vissuð þið að Hemmi Níelsar var aðalmaðurinn á bakvið Atlavík 1984, pælið í því hann tók ákvörðunina um Ringo Starr og hélt flottustu útihátíð fyrr og síðar. Hvað hefur þessið maður ekki gert? Ég skal veðja að það var hann sem fann upp pepsí og það hafi verið hann sem stóð fyrir framan skriðdrekana á torgi hinns himneska friðar árið 1989(sko Sunna ég glugga víst í fræðibækur).

Góðar fréttir hann sölvi er kominn með síðu fulla af röfli. Kíkið á þetta massa blogg.

Tuesday, November 26, 2002

flott mál.
Skórnir fundnir hjá þokkadís frá Flateyri og ég mun skera augnlokin af Pétri.
En hann ívar er kominn á hálann ís í vinamálum. Í hádeginu í dag þurfti ég að ganga í gegnum hlið helvítis og hengja þar upp 1. des augl. fyrir Sunnu sem er leikur ef þú hefur einhvern til að watchA backIÐ á þér en ef þú ert einn er það eins og að einsog að stökkva ofan á þyrlu á ferð og reyna að grípa utan um einn spaðann.
Ég hélt að ívar væri maður til að fara með mér í helgönguna miklu en hann var í fílu og var alveg tilbúinn að láta mig deyja vegna þess að honum hentaði ekki að standa úppúr stólnum sínum og allt leit út fyrir að ég þurfti að gera þetta aleinn en þá kom miklu hraustari maður mér til bjargar, enginn annar en hann Gunnlaugur frændi minn var tilbúnn að flýta sér með eplasvalann sinn til að ganga með mér til heljar.
Hann gekk með mér yfir í verkmentaskólann, þar sem krakkar læra ragmagnsfræði hjá ragmagnsfræði-kennurunum sínum og hengdi upp auglýsingarnar með mér.
Hann Gulli er meiri segja svo kaldur að hann var ekkert að flýta sér út heldur settist hann niður og fékk mig til að taka eina skák á taflborði kölska og ég valtað yfir hann og ég og Gulli gengum svo ósnertir úr verkmentaskólanum.
Gulli þú ert hetjan mín, sama þótt þú tapaðir fyrir mér í skák, Kafteinn Ísland hefur ekkert í þig!

Ég er kominn með fréttaritara frá Lundúnum og það er engin annar en skaðræðiskvendið hún Katarína. Kíkið þangað